Viðskipti hefjast með sjóði Glitnis
Glitnir hefur ákveðið að opnað verði fyrir viðskipti með sjóði sem hafa lokaðir síðan á mánudag í dag. Sjóðunum var lokað vegna óvissu á markaði og til að vernda hagsmuni um 18.000 sjóðfélaga. Í sjóðum Glitnis eru nú engin skuldabréf á Stoðir hf. (áður FL GROUP)
Glitnir lýsir yfir stuðningi við verðbréfasjóði Glitnis og sýnir með þessu einarðan vilja til að tryggja hagsmuni sparifjáreigenda sem fjárfest hafa í sjóðum Glitnis. Við endurmat á Sjóði 9 hjá Glitni sjóðum liggur fyrir að gengi sjóðsins hefur lækkað um 7% sem þýðir að ávöxtun síðastliðna 12 mánuði er um 7,6%, að því er segir í tilkynningu frá Glitni.
„Ákvörðun um að loka fyrir kaup og sölu sjóðanna var nauðsynleg til að tryggja rétta verðmyndun á eignum viðskiptavina Glitnis í sjóðunum og jafnframt að skapa svigrúm og tíma til að koma eignum í verð. Glitnir sætti nokkurri gagnrýni vegna þessarar ráðstöfunar en því miður var hún nauðsynleg. Glitnir harmar jafnframt þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans," samkvæmt tilkynningu.




















