Viðskipti
| mbl
| 2.10.2008
| 10:25
Kaupþing ekki að selja FIH
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, vísar því alfarið á bug í tölvupósti til danska blaðsins Børsen að bankinn sé að íhuga að selja danska bankann FIH Erhvervsbank. Blaðið Jyllands-Posten segir í dag, að Kaupþing sé að reyna að selja danska bankann.
Á fréttavef Børsen segir að svarið frá Sigurði hafi verið skýrt þegar hann var spurður um málið. „Nei" sagði hann í tölvupósti. Børsen segir að venjulega sé það hins vegar stefna bankans að tjá sig ekki um orðróm á markaði en hér hafi verið gerð undantekning.
Jyllands-Posten segir, að Nordea, Handelsbanken eða Danske Bank gætu hugsað sér að leggja fram tilboð í FIH.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















