Sterling deilir við flugvirkjafyrirtæki
Óvíst er hvernig viðhaldi flugvéla danska lággjaldaflugfélagsins Sterling verður háttað eftir þessa viku en félagið hefur ekki endurnýjað samning við flugvirkjafyrirtækið EAMS sem hefur séð um viðhald á vélum Sterling. Samningurinn rennur út á föstudag.
Fjallað er um málið í Berlingske Tidende í dag. Þar segir, að samningur félaganna hafi í raun runnið út um mánaðamótin en EAMS hafi framlengt hann einhliða til föstudags á meðan reynt er að ná samkomulagi um framlengingu.
Haft er eftir Kristian Kirchheiner, framkvæmdastjóra EAMS, að m.a. sé deilt um ógreidda reikninga af ýmsu tagi. Það þrengir stöðuna, að Sterling er eini viðskiptavinur EAMS og samningi félaganna hefur ítrekað verið breytt vegna þess að Sterling hefur jafnt og þétt minnkað flugflota sinn.
Rulle Westergaard, upplýsingafulltrúi Sterling, segir við blaðið að félagið hafi gert EAMS ljóst að það muni ekki standa undir rekstrartapi viðhaldsfélagsins með því að greiða skáldaða reikninga. Hún segir, að Sterling hafi haft samband við önnur viðhaldsfélög, sem þjóni keppinautum flugfélagsins, og fengið vilyrði fyrir því að þau muni yfirtaka viðhald flugféla Sterling frá og með föstudeginum ef Sterling og EAMS ná ekki saman.
Jafnframt hafi verið haft samband við dönsku flugmálastjórnina sem hafi heitið því að flugvélar Sterling verði ekki kyrrsettar á föstudag þar sem lausn sé í sjónmáli á viðhaldsmálinu.
Kristian Kirchheiner viðurkennir í samtali við Berlingske að EAMS eigi í rekstrarerfiðleikum sem stafi m.a. af fjárskorti flugfélaga.



















