Viðskipti
| mbl
| 5.10.2008
| 15:09
Þýska ríkið segist ábyrgjast innlán
Þýska ríkisstjórnin hefur boðist til að ábyrgjast öll innlán einstaklinga í þýskum bönkum, að sögn talsmanns þýska fjármálaráðuneytisins. Feta Þjóðverjar þannig í fótspor Íra og Grikkja, sem gripið hafa til samskonar aðgerða vegna fjármálakreppunnar.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði fyrr í dag við fréttamenn: „Við segjum við alla sparifjáreigendur að innistæður ykkar eru öruggar. Þýska ríkisstjórnin ábyrgist það."
Merkel sagði einnig, að ríkisstjórnin réri að því öllum árum að bjarga þýska bankanum Hypo Real Estate sem hefur orðið illa úti í lausafjárkreppunni, „til að tryggja að kreppa í stofnum breiðist ekki út um allt kerfið."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















