Viðskipti
| mbl
| 6.10.2008
| 14:28
Glitnir frestar innlausn úr sjóðum
Glitnir Sjóðir hf. segir að ekki verði komist hjá því að fresta innlausnum úr sjóðum, sem innihalda fjármálagerninga félaga sem Fjármálaeftirlitið hefur stöðv viðskipti með tímabundið. Um er að ræða Glitni, Kaupþingi, Landsbanka, Exista, Straumi og SPRON.
Sjóðirnir eru Sjóður 1 - skuldabréf, Sjóður 10 - úrval innl. hlbr. , Sjóður 11 - fyrirtækjabréf, Sjóður 6 - aðallistinn og Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf
Áfram
verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar
fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með
fjármálagerninga félaganna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















