Exista tapaði 1,4 milljörðum evra á Sampo-sölunni

mbl.is

Exista hefur lokið útboði með áskriftarfyrirkomulagi á öllum hlutum sínum í Sampo Oyj, eða 114.257.867 hlutum sem nema 19,98% af heildarhlutafé Sampo. Hlutirnir voru seldir til fjölda fagfjárfesta á genginu 11,50 evrur á hlut. Exista mun á fjórða ársfjórðungi bókfæra u.þ.b. 1,4 milljarða evra tap vegna sölunnar. Viðskiptin leiða til þess að skuldir Exista lækka um 1,3 milljarða evra.

Eftir viðskiptin á hvorki Exista né dótturfélög þess hluti í Sampo. Citigroup og Morgan Stanley höfðu umsjón með sölunni.

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands: „Sala Exista á eignarhlutnum í Sampo minnkar verulega heildarskuldir og greiðir fyrir stýringu félagsins í þeim erfiðu aðstæðum sem nú ríkja á fjármálamörkuðum. Engar áætlanir eru um sölu annarra eigna. Við teljum að með þau traustu fyrirtæki sem við eigum verðum við í góðri stöðu þegar því óvenjulega ástandi linnir sem nú ríkir á mörkuðum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK