Viðskipti
| Morgunblaðið
| 7.10.2008
| 7:11
Hluthafar skipta tugum þúsunda
Fjölmörg félög og einstaklingar eiga hluti í Kaupþingi og Landsbankanum, sem fjármálaráðherra fær heimild til að yfirtaka í heild eða að hluta, samkvæmt frumvarpi því sem forsætisráðherra lagði fram á Alþingi í gær.
Fjöldi hluthafa í Kaupþingi þann 30. júní síðastliðinn var 30.830 talsins, samkvæmt árshlutareikningi félagsins fyrir fyrri helming þessa árs. Hluthafar í Landsbankanum á sama tíma voru nokkuð færri eða 12.048 talsins.
Feðgar og bræður stærstir
Exista er stærsti hluthafinn í Kaupþingi með 24,71% hlut. Bakkabraedur Holding, sem er félag í eigu bræðranna Ágústar og Lýðs Guðmundssonar, er stærsti hluthafinn í Exista með 45,21% hlut. Ekki liggur fyrir hverjir eiga hluti sem eru geymdir á Arion-safnreikningi en Egla Invest er að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar í Samskipum. Fimmti stærsti hluthafinn í Kaupþingi, Q Iceland Finance, er í eigu félags sem sjeik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, fjármálaráðherra Katar, á, en félagið keypti hlutinn í Kaupþingi í síðasta mánuði.Samson, eignarhaldsfélag Björgólfs Guðmundssonar og sonar hans Björgólfs Thors, er stærsti hluthafinn í Landsbankanum. Félög sem þeim tengjast koma næst á hluthafalistanum. gretar@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















