Viðskipti
| mbl
| 7.10.2008
| 8:38
Kaupþing segir engin merki um inngrip
Kaupþing segir í tilkynningu, að engar vísbendingar séu um inngrip stjórnvalda í rekstur bankans í kjölfar neyðarlaganna, sem sett voru á Alþingi í gærkvöldi.
Í tilkynningunni segir, að Fjármálaeftirlitið hafi ekki haft samband við bankann með tilliti til inngripa. Að auki hafi Seðlabanki Íslands veitt Kaupþingi 500 milljóna evra lán, jafnvirði um 78 milljarða króna á skráðu gengi Seðlabankans, og Kaupþing vinni með stjórnvöldum að tryggja að íslenska fjármálakerfið starfi eðlilega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















