Lögmenn og endurskoðendur stýra Landsbankanum
Fjármálaeftirlitið hefur skipað lögmennina Ársæl Hafsteinsson, Einar Jónsson og Lárentsínus Kristjánsson í skilanefndina sem fer með stjórn Landsbankans ásamt endurskoðendunum Lárusi Finnbogasyni og Sigurjóni Geirssyni. Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, munu starfa áfram sem bankastjórar bankans.
Þetta er gert til að tryggja fullnægjandi innanlandsstarfsemi bankans og stöðugleika íslensks fjármálakerfis.
Eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir eru innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu. Útibú bankans á Íslandi, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir. Stefnt er að því að viðskiptavinir bankans finni sem minnst fyrir breytingum, að því er segir í frétt FME.
„Skilanefnd skal vinna að því að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi Landsbanka Íslands hf. hér á landi. Innköllun til lánardrottna Landsbanka Íslands hf. verður ekki gefin út. Ákvæði gjaldþrotaskiptalaga eiga ekki við meðan skilanefnd fer með málefni fjármálafyrirtækisins. Á sama tíma verður ekki komið fram aðfarargerð eða kyrrsetningu gagnvart Landsbankanum.
Skilanefnd hefur farið þess á leit við Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason að þeir haldi áfram störfum sem bankastjórar Landsbankans og beri áfram ábyrgð á daglegum störfum.
Landsbanki Íslands hf. vill taka fram að bankinn hefur ekki verið tekinn til gjaldþrotaskiptameðferðar heldur er aðgerðunum nú ætlað að vernda bankann tímabundið frá því að standa skila á greiðslum skulda og annarra skuldbindinga sem kunna að falla í gjalddaga.
Vinna hefur þegar hafist við endurskipulagningu á starfsemi Landsbankans. Skilanefndin og bankastjórar Landsbankans eru sammála um að starfsemi Landsbankans skuli vera í eins eðlilegu horfi og kostur er á næstu dögum með það fyrir augum að vernda hagsmuni Landsbankans innan lands sem utan," að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum.




















