Viðskipti
| AP
| 7.10.2008
| 6:42
Óbreyttir stýrivextir í Japan en lækkun í Ástralíu
Bankastjórn Seðlabanka Japans ákvað í morgun að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum en bankastjórn Seðlabanka Ástralíu lækkaði stýrivexti um 1% í morgun. Stýrivextir eru 0,5% í Japan og hafa verið óbreyttir í 20 mánuði. Í Ástralíu lækkuðu stýrivextirnir í 6% en lækkunin í nótt var mun meiri heldur en markaðurinn hafði gert ráð fyrir en flestir höfðu spá 0,5% lækkun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















