Viðskipti
| mbl
| 8.10.2008
| 7:53
| Uppfært
8:51
Darling segir íslensk stjórnvöld hafa gengið á bak orða sinna
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, segir í viðtali við BBC að stjórnvöld muni veita viðskiptavinum Icesave sérstaka aðstoð og tryggja innistæður þeirra, vegna þess að íslensk stjórnvöld hafi gengið á bak orða sinna.
Icesave er netbanki í Brelandi í eigu Landsbankans, með alls um 300.000 viðskiptavini.
Icesave hefur nú verið lokað og ekki er hægt að taka út innistæður af reikningum í honum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















