Viðskipti
| AFP
| 8.10.2008
| 20:25
Hlutabréf lækkuðu á Wall Street
Hlutabréf í Bandaríkjunum lækkuðu í dag, þrátt fyrir að helstu seðlabankar heims hafi tekið saman höndum og lækkað stýrivexti. Dow Jones lækkaði um 201,91 stig (2,14%) og er nú 9.245,2 stig. Nasdaq lækkaði um 14,55 stig (0,83%) og stendur í 1.740,33 stigum. S&P 500 lækkaði um 12,19 stig (1,22%) og er nú 984,04 stig.
Gengi hlutabréfa deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækkaði
um um 65,52%, eða 19 sent. í dag. Er gengi bréfanna skráð 0,48 dalir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















