ING kaupir inneignir í Edge og Heritable
Bankinn ING Direct í Bretlandi hyggst kaupa ríflega þrjá milljarða punda af inneignum breskrar sparifjáreigenda í tveim bönkum í Bretlandi sem eru í eigu Kaupþings og Landsbankans, Kaupthing Edge og Heritable Bank. Alls eiga um 180.000 Bretar inneignir í þessum bönkum.
Í gær var greint frá því að breska fjármálaeftirlitið hafi ráðið endurskoðendafyrirtækið Ernst&Young til að fara með neyðartilsjón á starfsemi Landsbankans í Bretlandi með það fyrir augum að vernda innlánseigendur og fjármálastöðugleika í Bretland.
Ráðstöfunin náði þó ekki til að vernda innlán um 200 þúsund viðskiptavina Icesave, netbanka Landsbankans í Bretlandi, að sögn talsmanns endurskoðendafyrirtækisins.
Á vef breska dagsblaðsins Times í gær kom fram að verndin mundi á hinn bóginn ná til viðskiptamanna Heritage, útibús Landsbankans í Bretlandi, að því blaðið hafði eftir forsvarsmönnum E&Y.



















