Viðskipti
| mbl
| 8.10.2008
| 11:33
Sænska ríkið gæti tekið yfir
Reuters
Lán Kaupþings í Svíþjóð í morgun er tryggt með eignum bankans þar í landi. Stefan Ingves, formaður bankastjórnar sænska seðlabankans, segir að fari allt á versta veg gæti sænska ríkið tekið bankann yfir.
Riksbanken, sænski seðlabankinn, lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra í dag og tekur hann veð í starfsemi Kaupþings í Svíþjóð. Ingves segir í samtali við di.se að í raun séu þrjár mögulegar lausnir. Sú fyrsta er að allt lagist á Íslandi, önnur lausnin er sú að Kaupþingi takist að selja starfsemina og sú þriðja er yfirtaka á starfseminni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















