Seðlabanki miðar áfram við sama gengi

mbl.is/Ómar

Seðlabankinn segir, að áfram sé unnið að mótun aðgerða til þess að skapa stöðugleika um raunhæft gengi krónunnar. Bankinn mun í dag, eins og í gær, eiga viðskipti á millibankamarkaði á gengi evru 131 kr. Í gær seldi bankinn 6 milljónir evra fyrir 786 milljónir króna.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir, að í þessu felist ekki að gengið hafi verið fastsett. Aðeins það að Seðlabankinn telji að hið lága gengi krónunnar, sem myndast hafi að undanförnu, sé óraunhæft. Mælist bankinn til þess að viðskiptavakar á millibankamarkaði hér styðji við þá viðleitni bankans að styrkja gengið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK