Tchenguiz selur hlut í kráakeðju
Robert Tchenguiz. ANDRE CAMARA
Breski kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz, sem verið hefur stór viðskiptavinur Kaupþings, hefur selt fjórðungshlut sinn í bresku kráakeðjunni Mitchells & Butlers. Breska blaðið Financial Times segir, að rekja megi þetta til fjármálakreppunnar á Íslandi sem hafi orðið veruleg áhrif á bresk fyrirtæki.
Blaðið segir, að 101 milljón hluta í Mitchells & Butlers hafi skipt um eigendur í gær eftir að kauphöllinni í Lundúnum var lokað. Var verðið 130 pens á hlut en lokagengi bréfanna var 163 pens og hafði þá lækkað um 12% yfir daginn. Segir FT að um hafi verið að ræða hlut Tchenguiz en seljandinn hafi verið Kaupþing sem hafði veð í bréfunum.
Hlutabréf í Mitchells & Butlers hafa lækkað um 74% á síðustu 12 mánuðum og um 25% undanfarna viku. Tchenguiz á enn 4,8% hlut í félaginu.



















