Ágúst Ólafur: Vill að seðlabankastjórar víki

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að allir 3 bankastjórar Seðlabankans verði látnir fara. Ágúst Ólafur segir bankastjórnina hafa gert mörg mistök að undanförnu. Þá segir hann þörf á myndarlegri lækkun stýrivaxta.

Ágúst segir í samtali við RÚV að mistök bankastjórnarinnar m.a. felast í því að auka ekki gjaldeyrisforðann í tíma, að tryggja ekki nægilegt lánsfé auk þess sem tilraun bankans til þess að festa gengið hafi mistekist. Ágúst Ólafur segir nauðsynlegt að endurvekja traust á Seðlabankanum og það verði ekki gert með núverandi stjórnendur við stjórnvölinn. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra vildi ekki taka undir með Ágústi í samtali við RÚV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK