Ljóst að FIH verður seldur
Henrik Sjøgreen, forstjóri danska bankans FIH Erhvervsbank, segir við fréttavef danska blaðsins Børsen, að hann sjái fáa möguleika áður en að bankinn verði seldur eftir að íslenska fjármálaeftirlitið greið inn í rekstur móðurfélagsins Kaupþings í nótt.
Seðlabanki Íslands tók öll hlutabréf FIH að veði fyrir 500 milljóna evra láni, jafnvirði 86 milljarða króna, sem hann veitti Kaupþingi í byrjun vikunnar.
Sjøgreen telur, að verðgildi FIH hafi verið 10-15 milljarða danskra króna virði, 230-350 milljarða íslenskra króna, áður en fjármálakreppan fór að segja til sín fyrir alvöru. Erfitt sé hins vegar að gera sér grein fyrir verðmætinu nú.
Bjarne Jensen, sérfræðingur í málefnum banka hjá BJ Consult, segir að eigið fé FIH sé um 6,3 milljarðar danskra króna, jafnvirði um 150 milljarða íslenskra króna, og það væri góð niðurstaða ef bankinn seldist á því verði.




















