Þaulreyndir formenn skilanefnda bankanna
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Í tilkynningum Fjármálaeftirlitsins vegna skipunar skilanefndanna segir að þær hafi verið skipaðar til að tryggja fullnægjandi innanlandsstarfsemi bankanna og stöðugleika íslensks fjármálakerfis. Þá segir í tilkynningunum:
„Eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir eru innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu. Útibú bankans á Íslandi, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir. Stefnt er að því að viðskiptavinir bankans finni sem minnst fyrir breytingum.
Það er mat Fjármálaeftirlitsins að þessi aðgerð sé nauðsynlegt fyrsta skref til þess að ná markmiðum nýsettra laga og til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands og öryggi innstæðna á Íslandi.“
Endurskoðendur og lögmenn
Í skilanefnd Landsbankans eru löggiltu endurskoðendurnir Lárus Finnbogason, sem er formaður nefndarinnar, og Sigurjón Geirsson. Þá eru í nefndinni lögmennirnir Ársæll Hafsteinsson, Einar Jónsson og Lárentínus Kristjánsson.Í skilanefnd Glitnis eru löggiltu endurskoðendurnir Árni Tómasson, formaður nefndarinnar, og Heimir Haraldsson. Auk þeirra eru í nefndinni Steinunn Guðbjartsdóttir, lögmaður, Sverrir Örn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, og Ágúst Hrafnkelsson, innri endurskoðandi.
Formenn beggja skilanefndanna hafa báðir víða komið við og hafa auk þess báðir reynslu af stjórnunarstörfum í fjármálakerfinu, hvor á sínu sviði. Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, er 49 ára að aldri og er yfirmaður endurskoðunarsviðs og einn af eigendum endurskoðunarskrifstofunnar Deloitte. Hann er fyrrverandi formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, var formaður þar til núverandi formaður FME, Jón Sigurðsson, tók við á síðasta ári.
Árni Tómasson verður 53 ára að aldri síðar í þessum mánuði. Hann hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi og rekur ráðgjafarfyrirtækið AT-Ráðgjöf ehf. auk þess að sinna kennslu. Hann er fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbanka Íslands, sem síðar varð að Kaupþingi. Hann gegndi því starfi á tímabilinu frá 2001 til 2003.



















