Lánshæfiseinkunn OR lækkuð

Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfismat Orkuveitu Reykjavíkur úr Aa2 í A1. Þá verður fyrirtækið áfram til skoðunar með tilliti til hugsanlegrar lækkunar.

Helsta ástæða breytingarinnar á matinu er, að því er kemur fram í frétt Moody's, versnandi ástand á íslenskum fjármálamarkaði og versnandi efnahagsástand, sem endurspeglast í lækkun á lánshæfismati ríkisins úr Aa1 í A1.

Orkuveita Reykjavíkur býr því við sama lánshæfismat og íslenska ríkið eftir breytinguna í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK