Viðskipti
| mbl
| 13.10.2008
| 10:22
Engin viðskipti með fjármálagerninga
Enn er í gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um tímabundna
stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga sem útgefnir eru af Glitni banka hf., Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Exista hf., Straumi fjárfestingarbanka hf. og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf.
Ákvörðunin var tekin þar sem það er mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði ekki tryggt með öðrum hætti. Af því leiðir að Glitnir Sjóðir hf. kemst ekki hjá því að fresta innlausnum í eftirfarandi sjóðum þar sem þeir innihalda fjármálagerninga framangreindra félaga:
Sjóður 1 - skuldabréf
Sjóður 10 - úrval innl. hlbr.
Sjóður 11 - fyrirtækjabréf
Sjóður 6 - aðallistinn
Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna, að því er segir í tilkynningu frá Glitni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















