Icesave var orðinn allt of stór
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Viðskiptavinum Icesave-reikninga Landsbankans á Bretlandi fjölgaði um tæp 100 þúsund á þessu ári. Þar með fjölgaði þeim innistæðureikningum sem íslenska ríkið þarf að tryggja um sömu tölu. Í lok árs 2006 voru viðskiptavinir Icesave á Bretlandi 128 þúsund talsins en voru yfir 220 þúsund undir það síðasta.
Á sama tíma var íslenska Fjármálaeftirlitið (FME) að reyna að fá reikningana færða inn í dótturfélag bankans vegna þess að þeir voru orðnir of stórir. FME hafði allt frá ársbyrjun 2008 þrýst á Landsbankann um að færa Icesave-reikningana inn í dótturfélag sitt, Heritable-bankann, vegna þess að það taldi reikningana orðna hættulega stóra. Á meðan Icesave var útibú frá Landsbankanum þurfti íslenska ríkið nefnilega að tryggja innistæður að upphæð allt að 20.887 evrur á hvern Icesave-reikning.
Gat ekki mætt kröfum
Breska fjármálaeftirlitið gerði þær kröfur að Landsbankinn myndi færa eignir til jafns við skuldir (innistæður viðskiptavina sinna) áður en Icesave fengi að fara inn í dótturfélag. Landsbankinn taldi sig ekki geta mætt þeim kröfum innan þess tímaramma sem breska fjármálaeftirlitið setti og því varð ekki af færslunni. Bankinn hélt samt sem áður áfram að safna viðskiptavinum inn á Icesave-reikningana og því jókst virði þeirra eigna sem breska fjármálaeftirlitið krafðist að fært yrði út á móti.Því til viðbótar var ákveðið að opna Icesave-reikninga í Hollandi í lok maí. Í fréttatilkynningu vegna þessa kom fram að til stæði að sækja inn á enn fleiri evrópska markaði á komandi árum. Fjórtán þúsund manns opnuðu Icesave-reikning í Hollandi fyrstu vikuna eftir að þeir voru formlega opnaðir.
Fáum lánaða milljarða evra
Morgunblaðið sagði frá því í gær að hámarksábyrgð Íslands vegna Icesave-reikninganna í Hollandi og Bretlandi væri 4,1 milljarður evra. Hollensk og bresk stjórnvöld munu lána þeim íslensku þessar upphæðir til að þau geti staðið við skuldbindingar sínar. Ríkin tvö munu síðan gera upp við innistæðueigendurna í viðkomandi löndum.Þessu til viðbótar var það tilkynnt í gær að Englandsbanki ætlaði að lána þrotabúi gamla Landsbankans allt að 100 milljónum punda til að endurgreiða Bretum innistæður á reikningum sínum. Um skammtímalán er að ræða.
Til að greiða þessar háu upphæðir til baka á að selja eignir úr þrotabúi Landsbankans. Alls óljóst er enn hversu mikið fæst til baka með sölu þeirra eigna. Financial Times greindi frá því nýverið að fjármálalegar eignir Landsbankans væru metnar á sjö milljarða punda. Ef það reynist rétt ættu eignirnar að duga vel fyrir skuldunum.
Í hnotskurn
» Til að endurgreiða þær upphæðir sem bresk og hollensk stjórnvöld lána okkur til að greiða tryggingar á innistæðum Icesave-reikninganna þarf að selja eignir.» Financial Times greindi nýverið frá því að fjármálalegar eignir Landsbankans væru metnar á sjö milljarða punda.
» Eina formlega tilboðið sem hefur komið í eignir Landsbankans er tilboð Philips Greens í skuldir Baugs.




















