Sjeik hættir við Alfesca

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Alfesca
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Alfesca mbl.is/Árni Sæberg

Sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins af Katar, og stjórn Alfesca, hafa náð samkomulagi um að fjárfestingafélag Al-Thani falli frá kaupum á 850 milljón hlutum í Alfesca eða um 12,6%. Í síðasta mánuði var greint frá kaupum hans á 5% hlut í Kaupþingi á 25,6 milljarða króna.

„Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar Alfesca og Q Iceland Holding ehf. (áður ELL 162 hf.) fjárfestingarfélags í eigu hans hátignar Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, um að falla frá fyrirhugaðri áskrift að 850.000.000 hlutum í Alfesca í ljósi hins óvenjulega fjárhagslega óróa og þeirrar óvissu sem ríkir á hinum íslenska fjármálamarkaði og mikillar veikingar íslensku krónunnar, þar til markaðurinn verður stöðugri.

Í bréfi til stjórnar Alfesca hefur hans hátign ítrekað stuðning sinn og áhuga á Alfesca sem langtímafjárfestingu og staðfest vilja sinn til að halda áfram að vinna með félaginu verði tækifæri til þess. Í ljósi ríkjandi aðstæðna hefur stjórnin ákveðið að fresta aðalfundi félagsins, sem átti að halda mánudaginn 20. október n.k., til þriðjudagsins 18. nóvember n.k. Nánari upplýsingar varðandi fundinn verða kynntar þegar fram líða stundir," að því er segir í tilkynningu frá Alfesca til Kauphallar Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK