Viðskipti
| mbl
| 16.10.2008
| 9:59
Óbreyttur eignarhlutur Fons í Ticket
Ticket Travel Group hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að til að koma í veg fyrir allan misskilning að ekki hafa orðið neinar breytingar á eignarhaldi Fons hf í Ticket síðan 29,26% eignarhlutur var keyptur af Northern Travel Holding í ágúst á þessu ári.
Ticket er stærsta ferðaskrifstofan í einkaeign í Svíþjóð og sú næststærsta í Noregi og ticket.dk er einnig starfandi í Danmörku.
Ticket segist stefna að því að verða stærsta ferðaskrifstofan á norðurlöndum. Um 470 manns starfa hjá fyrirtækinu sem veltir um 76 milljörðum íslenskra króna á ári.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin