Segja fjármögnun HoF og Mosaic í lagi
Stjórnendur bresku verslanafyrirtækjanna House of Fraser og Mosaic Fashions hafa sent frá sér tilkynningu um að fjármögnun fyrirtækjanna sé í lagi en félögin eru bæði að hluta í eigu Baugs Group. Samkvæmt Reuters fréttastofunni sendu félögin frá sér tilkynningu eftir að greint var frá því að viðræður breska kaupsýslumannsins Philip Green, og íslenskra stjórnvalda, stjórna íslensku bankanna og Baugs stæðu enn yfir.
Kemur fram í frétt Reuters að Green vilji yfirtaka skuldir Baugs sem metnar eru á yfir einn milljarð punda. Einhver hluti skuldar Baugs er við íslensku bankana sem nú hafa verið þjóðnýttir.
„Við viljum leggja áherslu á að fjármögnun House of Fraser gangi vel," segir í tilkynningu frá HoF en Baugur á 35% hlut í félaginu, samkvæmt Reuters.
Heimildir herma að fjárfestingafélög eigi nú í samkeppni við Green um að eignast hlut í fyrirtækjum Baugs í Bretlandi. Í viðtali við Reuters sagði Green að engin niðurstaða væri komin í málið en unnið er að málinu.



















