Viðskipti
| mbl
| 17.10.2008
| 8:43
| Uppfært
10:24
30 milljarðar í sjóðum Landsvaka
Peningamarkaðssjóðir Landsvaka, sem er í eigu Landsbankans, í krónum eru með 30 milljarða í lausafé en á forsíðu Morgunblaðsins í dag kemur fram að ekkert laust fé er eftir í verðbréfasjóðum og fjárfestingasjóðum Landsbankans, að sögn Sigurðar Óla Hákonarsonar, framkvæmdastjóra Landsvaka, í samtali við mbl.is.
Hann gerir alvarlega athugasemd við frétt Morgunblaðsins sem einnig er birt á mbl.is í dag.
Morgunblaðið tekur fram, að þær tölur, sem birtar voru um stöðu verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbanka, Glitnis og Kaupþings í dag, eru tölur sem skilanefndir bankanna skiluðu inn til Fjármálaeftirlitsins og viðskiptaráðuneytisins, samkvæmt upplýsingum úr viðskiptaráðuneytinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















