Er Sviss næsta Ísland?
Stjórnvöld í Sviss hafa neyðst til að grípa til neyðaraðgerða til að bjarga tveimur af stærstu lánastofnunum landsins og koma í veg fyrir hrun í bankakerfinu. Breska dagblaðið Independent veltir þeirri spurningu upp hvor Sviss muni lenda í sömu sporum og Ísland.
Svissnesk stjórnvöld munu leggja til 3,1 milljarð evra handa UBS, sem er stærsti banki Sviss, og í staðinn eignast ríkið 9,3% hlut í bankanum. Þannig getur UBS losað sig við vondar eignir, s.s. undirmálslán, að andvirði 31 milljarði evra. Eignirnar verða settar í sérstakan sjóð sem svissneski seðlabankinn hefur umsjón með.
Þá hefur Credit Suisse, sem er annar stærsti banki Sviss, einnig þurft að grípa til aðgerða til að styrkja sína sjóði, að fengnum tilmælum frá Seðlabanka Sviss. Bankinn hefur gert þetta til mæta strangari fjármálareglum.
Svisslendingar hafa neyðst til að gera þetta til að koma í veg fyrir að fjárfestar glati trausti á svissneska bankakerfinu, sem notið hefur mikils trausts og virðingar í heiminum, eftir að m.a. Bretar og Bandaríkjamenn tilkynntu það að þeir myndu styrkja helstu lánastofnanir í viðkomandi löndum. Ef stjórnvöld í Sviss hefðu ekki gripið til þessara aðgerða þá hefðu þarlendir bankar verið viðkvæmari fyrir óróa á mörkuðum og spákaupmennsku.



















