Viðskipti
| AP
| 17.10.2008
| 8:32
Hráolía hækkar í verði
Verð á hráolíu hækkaði í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun. Hækkaði verð á hráolíu til afhendingar í nóvember um 1,40 dali tunnan og er 71,25 dalir tunnan. Lokaverð hráolíu var 69,85 dalir tunnan á NYMEX markaðnum í New York í gærkvöldi og nam lækkun dagsins 4,69 dölum. Hefur lokaverðið ekki verið jafn lágt á NYMEX frá 23. ágúst 2007. Verð á hráolíu fór hæst í 147,27 dali tunnan þann 11. júlí sl.
Í Lundúnum hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í nóvember um 2,72 dali tunnan í morgun og er 69,04 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















