IMF staðfestir rannsókn á Strauss-Kahn
Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) staðfesti í dag, að rannsókn stæði yfir á því hvort Dominique Strauss-Khan, framkvæmdastjóri sjóðsins, hefði misbeitt valdi sínu á sama tíma og hann átti í ástarsambandi við starfsmann sjóðsins.
Rannsóknin hófst að frumkvæði Egyptans Shakour Shaalan, sem situr í stjórn sjóðsins. Segir talsmaður IMF, að Shaalan hafi óskað eftir því að óháð lögmannsstofa stýri rannsókninni og leggi mat á þær ásakanir, sem lagðar hafa verið fram á hendur Strauss-Kahn.
Blaðið Wall Street Journal sagði í dag, að IMF hafi ráðið lögmannsstofuna Morgan, Lewis & Bockius LLP til að rannsaka málið og er niðurstöðu að vænta í lok október. Rannsóknin er sögð beinast að ástarsambandi Strauss-Kahns við Piroska Nagy, fyrrum yfirmanni hjá Afríkudeild IMF. Nagy, sem á ættir að rekja til Ungverjalands, hætti störfum hjá IMF í ágúst þegar starfsfólki var fækkað, og starfar nú hjá Evrópubankanum. Rannsóknin beinist m.a. að því hvort Nagy hafi fengið óeðlilega hagstæðan starfslokasamning.
Wall Street Journal vísaði til yfirlýsingar frá Strauss-Kahn þar sem hann segist hafa veitt aðstoð við rannsóknina og muni halda því áfram. Segir hann að umrætt atvik tengist einkalífi hans. „Ég misbeitti aldrei stöðu minni sem framkvæmdastóri sjóðsins," segir hann.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Strauss-Kahn hafa verið í sviðsljósinu vegna fjármálakreppunnar. Margir búast við því, að íslensk stjórnvöld muni óska eftir aðstoð sjóðsins vegna bankakreppunnar hér á landi.



















