Askar segir upp 16 starfsmönnum
bjorgvin@mbl.is
Benedikt Árnason, forstjóri Askar, segir að gripið hafi verið til þessara aðgerða til að hagræða enn frekar í rekstrinum.
Þegar hálfsársuppgjör bankans var kynnt kom fram að eignir hefðu verið seldar og starfsmönnum fækkað.
„Fyrri aðgerðir dugðu ekki til í ljósi þess fárviðris sem hefur geisað á mörkuðum síðastliðnar vikur,“ segir Benedikt. Verkefnum hafi fækkað og draga þurfi úr rekstrarkostnaði.
Forstjóri Askar segir endurskipulagningu á rekstrinum ekki liggja endanlega fyrir. Þó sé ljóst að ráðgjafarhlutinn verði meira áberandi í framtíðinni.
Askar hefur til dæmis verið með ráðgjöf í skulda- og eignastýringu, fjármögnun og fasteignaverkefnum. Bankinn hefur meðal annars haft milligöngu um stór lán sveitarfélaga og stofnana eins og Byggðastofnunar erlendis. Markmið stjórnenda Askar er að þóknanatekjur bankans standi undir öllum rekstrarkostnaði. Það tókst ekki á fyrri helmingi ársins og er markmiðið að rekstrarkostnaður á fjórða ársfjórðungi verði 35% lægri en á öðrum ársfjórðungi.



















