Bankastjóri Glitnis: Þetta var góður banki

Birna Einarsdóttir. stækka

Birna Einarsdóttir.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Glitnis, segir í viðtali við Financial Times í dag að líklegt sé að Glitni muni að öllum líkindum horfa aftur í tímann nú eða til ársins 2005. „Þetta var góður banki – hann var það áður en við fórum í allar þessar yfirtökur og stækkun erlendis.”

Blaðamaður FT, Sarah O'Connor, hefur eftir Birnu í viðtalinu, að hún kunni einungis eitt – viðskipti. Menntun hennar snúi einvörðungu að viðskiptum og ráðleggur Birna ungu fólki að leita víðar þegar það aflar sér menntunar. Það sé seinni tíma mál að sérhæfa sig í einhverju.

Á meðan viðtalinu stendur hringir bleikur farsími Birnu og segist hún ekki vita hvernig eigi að breyta hringingunni sem er vinsælt popplag. Már Másson, sem sér um samskiptamál Glitnis, muni biðja hana um breyta um hringitón enda sé hún núna bankastjóri.

Segir í FT að Birnu bíði gríðarlegt verkefni, að byggja upp viðskiptabanka á sama tíma og efnahagslífið sé í frjálsu falli. Margir af íbúum Íslands hafi tapað sparifé sínu, lífeyri og geti ekki greitt af lánum. Orðspor landsins hafi beðið hnekki og einhverjir erlendir bankar neiti jafnvel að millifæra peninga viðskiptavina til landsins.

Hugmyndir um nýjar höfuðstöðvar orðnar að engu

„Ég er kannski barnaleg en ég held að við finnum leið út úr þessu,” segir Birna við blaðamann FT. Viðtalið er tekið á skrifstofu Birnu í höfuðstöðvum Glitnis við Kirkjusand og talið berst að fyrirætlunum bankans um að byggja nýjar höfuðstöðvar. Þær hugmyndir eru orðnar að engu líkt og margt annað hjá Glitni. „Okkur líður vel hér og það er nægt rými í byggingunni núna,” segir Birna og vísar til þess að um 100 starfsmönnum Glitnis hafi verið sagt upp.

Birna hóf störf hjá Íslandsbanka, forvera Glitnis, haustið 2004 sem framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála.

Birna starfaði áður um sex ára skeið að markaðsmálum hjá Royal Bank of Scotland. Hún var markaðsstjóri Íslandsbanka á árunum frá 1994 - 1997 og um hríð einn af útibússtjórum bankans. Hún hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins - Stöðvar 2 og Íslenskra getrauna.

Birna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Edinborg.

Birna segir að þegar hún ákvað að snúa aftur til Íslands árið 2004 hafi ýmsir undrast það að hún vildi koma heim á ný. Hún segir að ein aðalástæðan hafi verið að hún hafi séð sig hafa meiri áhrif á Íslandi heldur en hjá Royal Bank of Scotland. „Það var gott að setjast við borðið þar sem ákvarðanirnar voru teknar.” Hún viðurkennir hins vegar að það sé ekki auðvelt að fagna nýju starfi við þær aðstæður sem nú ríki. „Það er ekkert kampavínsboð í gangi, einungis mikil vinna við að láta hlutina gerast  á ný,” segir Birna.

Breyta verður um stefnu

Stjórnmálamenn hafa tjáð blaðamanni FT að valið á Birnu og Elínu Sigfúsdóttur í starf bankastjóra eigi að sýna fram á breytingar á stefnu bankanna.

„Ég held að ég sé í þessu starfi núna þar sem ég stýrði þeirri deild sem verður nú meginstoð  bankans. Það er þess vegna sem ég er hér núna, vona ég,” segir Birna. En hún segir að breyta verði um stefnu. „Bankinn óx of hratt og of mikið í of litlu hagkerfi með veikan gjaldmiðil.”

Höfum lært okkar lexíu

Birna segir að hinn nýi Glitnir muni væntanlega starfa erlendis síðar meir, bæði hvað varðar lánveitingar og fjárfestingar. Hins vegar muni verða erfitt að endurheimta traustið á ný. Það taki tíma og útrásin verður með öðrum hætti en hún var enda séu þau ekki heimsk. „Við höfum lært okkar lexíu,”  segir Birna og bætir við að Íslendingar hafi ávallt verið hugrakkir og lausir við ótta. Stundum sé það af hinu góða en ekki alltaf.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir