Viðskipti
| mbl
| 21.10.2008
| 5:53
Fara fram á framlengingu greiðslustöðvunar
Stjórn Stoða (FL Group) óskaði eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær að heimild til greiðslustöðvunar félagsins verði framlengd um þrjá mánuði. Úrskurðar Héraðsdóms er að vænta innan sjö daga. Stoðir fengu greiðslustöðvun til þriggja vikna þann 29. september sl. þegar ljóst var að ríkið myndi koma inn í Glitni sem hluthafi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















