Glitnir í Noregi seldur á 5,1 milljarð
Glitnir byggði upp starfsemi sína í Noregi meðal annars með yfirtöku á tveimur bönkum, BNbank í Þrándheimi og Kredittbanken í Álasundi.
Nýju eigendur eru Sparebanken Hedmark (15%), SpareBank 1 SMN (25%), SpareBank 1 SR-Bank (20%), SpareBank 1 í Norður-Noregi (20%) og síðan eignast 16 sparisjóðir samanlagt 20% hlut.
Samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar í Ósló þurfa stjórnvöld að samþykkja kaupin en fastlega er gert ráð fyrir því að það gerist fyrir 30. nóvember nk. þegar lokið verður við kaupin.
Á fréttavefnum E24 kemur fram að SpareBank 1 er samband 21 sparisjóðs sem rekur 352 skrifstofur í öllum héruðum Noregs. Velta SpareBank 1 á síðasta ári nam 474 milljörðum norskra kóna og starfa tæplega 5.500 manns hjá sparisjóðum innan sambandsins.




















