Viðskipti
| mbl
| 21.10.2008
| 7:11
Green hefur enn áhuga
TOBY MELVILLE
Breski kaupsýslumaðurinn Philip Green, segir í samtali við BBC að ekki liggi fyrir hvort hann kaupi skuldir Baugs en hann hafi enn áhuga á félögum í eigu Baugs. Segir hann að málið sé fremur flókið enda sé málið á borðum stjórnmálamanna. Hagnaður verslunarkeðjunnar Arcadia, sem er í eigu Green, dróst saman um 6% á síðasta rekstrarári.
Segir Green ósennilegt að Arcadia kaupi breskar verslanir í eigu Baugs. Meðal verslana sem tilheyra Arcadia eru Topshop og Miss Selfridge. Nam rekstrarhagnaður Arcadia 275,3 milljónum punda á síðasta rekstrarári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















