Hækkun á markaði í Rússlandi
Helstu hlutabréfavísitölur í Rússlandi hækkuðu við opnun markaða í morgun. Hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu er talin helsta ástæðan. Hlutabréfamarkaðir í Rússlandi hafa hins vegar orðið einna verst úti af mörkuðum heimsins það sem af er þessu ári.
RTS-hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í Moskvu hafði hækkað um tæp 3% fljótlega eftir opnun markaða í morgun og MICEX-vísitalan um rúm 3%. Hlutabréf orkurisans Gazprom höfðu hækkað um tæp 5% og bréf olíufyrirtækisins Lukoil um tæp 7%. Hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu yfir 75 dollara fyrir tunnuna hafði þar mikið að segja samkvæmt frétt AP-fréttastofunnar.
Vladimir Putin forsætisráðherra sagði í gær að Rússland væri vel í stakk búið til að takast á við fjármálakreppuna í heiminum. Þróun á heimsmarkaðsverði á olíu hafi þó mikið þar um að segja en Rússland er einn helsti olíuútflytjandi heims. Putin lét þessi orð fall þegar í ljós kom að hlutbréf höfðu almennt hækkað í verði í gær.
Rússneskur hlutabréfamarkaður hefur hins vegar tekið miklum breytingum þarð sem af er ári. Eru hlutabréfavísitölur nú almennt um tveimur þriðju lægri en þær voru síðastliðið vor, sem er með því mesta sem þekkist. Stafar lækkun að stærstum hluta af þróun á heimsmarkaðsverði á olíu, annars vegar, og innrás Rússa í Georgíu í ágústmánuði síðastliðnum, hins vegar. Þá segir í frétt AP-fréttastofunnar að áhyggjur fjárfesta af hugsanlegum afskiptum stjórnvalda af atvinnulífinu eigi þarnfa einnig þátt.



















