Green setur Baug á ís
Breski kaupsýslumaðurinn Philip Green, hefur sett áætlanir um að kaupa skuldir Baugs í Bretlandi á ís og leitar nú nýrra kauptækifæra á smásölumarkaðnum enda séu sameiningar óumflýjanlegar nú, að því er fram kemur í Times í dag. Segir Green að þjóðnýting íslensku bankanna geri það nánast ómögulegt að vita í hvaða farvegi tilboð hans er og hvenær ákvörðunar er að vænta frá íslenskum stjórnvöldum.
Samkvæmt Times eru skuldir Baugs metnar á 1,5 milljarð punda, rúmlega 291 milljarð íslenskra króna. Segir í frétt Times að skuldir Baugs hafi verið frystar af íslenskum stjórnvöldum. Talið er að Green hafi áhuga á að eignast tískuvörukeðjur Baugs í Bretlandi en hann segir að staðan sé erfið þegar ekki liggur ljóst fyrir hver seljandinn er. „Þegar þú kemur í banka og hittir fyrir lögregluþjón í stað bankastjóra þá er þetta frekar erfitt," segir Green.




















