Lögtak í eignum Glitnis í Noregi
Dómari í Noregi hefur fallist á kröfu norsku stofnunarinnar Eksportfinans um að gert verði lögtak í eignum Glitnis í Noregi vegna kröfu að upphæð 149 milljónir norskra króna.
Eksportfinans hefur kært Glitni til lögreglu og telur að bankinn hafi brotið lög í tengslum við lán, sem hann hafði milligöngu um. Lánin, sem veitt voru þremur útgerðarfélögum, námu samtals 415 milljónum norskra króna, um 7 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Þau voru greidd upp en Glitnir virðist, að sögn Eksportfinans, hafa haldið eftir höfuðstólnum en greitt vexti og afborganir til Eksportfinans eins og lánin væru enn útistandandi.
Fram kemur í norskum blöðum í dag að héraðsdómur á Sunnmæri hafi fallist á kröfu lögtaksmanns. Er lögtakið aðalleg gert í láni, sem Glitnir á Íslandi veitti fyrirtækinu Island Offshore VIII í Ulsteinvik og hugsanlega í hlutabréfum í norskum félögum Glitnis, þar á meðal Glitni Bank ASA, sem norskir sparisjóðir keyptu í gær.




















