Stefnt að lausn málsins í samvinnu við Eksportfinans
Skilanefnd Glitnis hefur sent frá sér tilkynningu vegna kæru norsku stofnunarinnar Eksportfinans í Noregi. Segir í tilkynningunni að enn sé unnið að rannsókn málsins en eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag er rannsóknin í algjörum forgangi hjá skilanefnd Glitnis.
„Vegna frétta um að Eksportfinans í Noregi hafi kært gamla Glitni banka vill skilanefnd bankans koma eftirfarandi á framfæri. Ef að í ljós kemur að mistök hafi verið gerð að hálfu gamla Glitnis munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að leysa málið í samráði við Ekportfinans. Við vinnum að lausn þessa máls með okkar lögfræðingum á Íslandi og í Noregi.
Það sem meðal annars er verið að skoða er hvort hægt sé að koma að fullu til móts við kröfur Ekportfinans án þess fara á svig við íslensk lög eða raska jafnræði kröfuhafa. Við vonumst til þess að niðurstaða náist í þessu máli sem allra fyrst. Þar sem málið er í lögfræðilegum farvegi getur skilanefndin ekki tjáð sig frekar um málið fyrr en niðurstaða liggur fyrir," að því er segir í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis.




















