Brown gagnrýnir Brown
Stjórnvöld á eyjunni Mön á Írlandshafi ætla að verja allt að 150 milljónum, helmingi skatttekna sinna og 7,5% af vergri landsframleiðslu, til að bæta sparifjáreigendum, sem áttu inneignir á innlánsreikningum Kaupþings í Bretlandi, tjón sitt. Tony Brown, forsætisráðherra eyjarinnar, gagnrýnir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, harðlega fyrir aðgerðir gegn Kaupþingi.
„Bankinn var starfhæfur og hafði lausafé. Hann átti ekki í neinum vandræðum fram að aðgerðunum. Við höfum komið ákveðnum boðum á framfæri við Bretland. Við viljum eignir okkar aftur," sagði Brown í samtali við Financial Times.
Hann staðfesti, að þegar Kaupþing, móðurfélag Kaupthing Singer & Friedlander í Lundúnum, tók yfir útibú Derbyshire Building Society á Mön árið 2007 hafi bankinn einnig ábyrgst skuldbindingar sjóðsins. Hins vegar sé ólíklegt að bankinn standi við það í ljósi efnahagskeppunnar á Íslandi
Mön, þar sem rúmlega 80 þúsund manns búa, er að hluta með sjálfstætt stjórnkerfi og telst ekki hluti af breska ríkinu þótt hluti af stjórnsýslunni heyri undir Bretland. Þess vegna tryggir breskur tryggingasjóður innlána ekki sjálfkrafa tjón, sem sparifjáreigendur þar verða fyrir vegna falls Kaupþings. Það sama gildir um nokkrar Ermarsundaeyjar eins og Jersey.




















