Straumur kaupir nafn og eignir Teathers
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hefur samið við umsjónaraðila breska verðbréfa- og ráðgjafarfyrirtækisins Teathers Limited, sem er í greiðslustöðvun, um kaup á nafninu Teathers, ásamt tilteknum eignum sem lúta að rekstri starfseminnar.
Teathers hét áður Landsbanki Securities Limited og var meðal fyrirtækja, tengdum erlendri fjárfestingarbankastarfsemi Landsbankans, sem Straumur keypti í september. Kaupunum var rift eftir að Fjármálaeftirlitið greip inn í rekstur Landsbankans í október.
Fram kemur í tilkynningu frá Straumi, að stefnt sé að því að ráða allt að 80 starsfmenn Teathers, eða meirihluta núverandi starfsmanna þegar stoðsvið séu undanskilin. Um sé að ræða starfsmenn á öllum helstu sviðum starfseminnar, þ.e. fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, greiningu og fjárfestingarsjóðum, auk nokkurra stoðsviða.
Starfsemin verður rekin undir merkjum Teathers frá útibúi Straums í London. Nick Stagg, forstjóri Teathers, mun leiða starfsemina. Hann mun taka sæti í framkvæmdastjórn Straums og heyra beint undir William Fall, forstjóra Straums.




















