Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.10.2008
| 6:30
Viðræður um kaup á eignum Landsbanka
Viðræður munu vera í gangi milli Straums-Burðaráss og Landsbanka um kaup hins fyrrnefnda á einhverjum eignum Landsbankans í Bretlandi. Hinn 1. október sl. náðist samkomulag um kaup Straums á fjármögnunarstarfsemi og verðbréfamiðlun Landsbankans, þ.ám. Teathers Ltd., sem áður hét Landsbanki Securities (UK).
Þessu samkomulagi var hins vegar rift þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir stjórn á Landsbankanum. Í frétt Reuters segir að nú eigi sér stað viðræður um hvort mögulegt sé að endurvekja samkomulagið með einhverjum hætti.
Óvíst er hvort Straumur hefur enn áhuga á að kaupa allar eignir Landsbankans, sem hann hafði áður samþykkt að kaupa, en sagt er að niðurstöðu viðræðnanna sé að vænta á næstu dögum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















