Um 150 missa vinnuna

Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún.
Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún. mbl.is/Golli

Í kringum 150 starfsmönnum Kaupþings á Íslandi verður ekki boðið starf í Nýja Kaupþingi samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Munu þá rúmlega 1.100 starfsmenn starfa hjá Nýja Kaupþingi. Einhverju af starfsfólki hafði áður verið sagt upp frá síðustu áramótum. Þá störfuðu 1.262 starfsmenn hér á landi samkvæmt ársskýrslu félagsins en 3.400 hjá allri samstæðunni.

Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings, vildi ekki staðfesta neina tölu í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að færri en 200 yrði sagt upp en fleiri en 100.

Hver starfsmaðurinn á fætur öðrum var boðaður á fund yfirmanna í gær þar sem tilkynnt var að þeim byðist ekki vinna í Nýja Kaupþingi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var ekki öllum sagt upp í gær sem missa vinnuna. Þessi vinna mundi klárast um helgina.

Tveir starfsmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu að fólk hefði verið niðurdregið. Annar þeirra missti vinnuna og sagði óvissuna framundan. Hinn sagði leiðinlegt að sjá á eftir mörgum vinnufélögum. Hvorugur vildi koma fram undir nafni vegna aðstæðna.

Um 450 hafa misst vinnuna

Um síðustu áramót störfuðu um 7.900 manns hjá viðskiptabönkunum þremur um allan heim. Á þessu ári hefur starfsfólki verið fækkað skipulega, sérstaklega hjá Glitni og Kaupþingi. Nú hefur erlenda starfsemin verið skorin frá og um 450 manns misstu vinnuna hér á Íslandi þegar nýju bankarnir voru stofnaðir.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK