Þýskur banki krefst lögtaks í eigum Glitnis í Noregi
Þýskur banki, KfW, hefur nú krafist lögtaks í hlutabréfum Glitnis í Noregi að fjárhæð 1,3 milljarðar norskra króna, jafnvirði 22,5 milljarða íslenskra króna. Norska sparisjóðasambandið SpareBank1 keypti norska bankann nýlega en lögtakskröfur ýmissa aðila í hlutabréf bankans hafa sett strik í reikninginn.
Að sögn norska ríkisútvarpsins NRK lánaði þýski bankinn Glitni á Íslandi 150 milljónir evra. Stærstur hluti þessa fjár var notaður í starfseminni í Noregi. NRK segir, að skilanefnd Glitnis hafi ekki upplýst kaupendur í Noregi um þessa kröfu KfW.
Hans Tronstad, upplýsingafulltrúi SpareBank 1 segir, að þetta breyti þó ekki áformum sparisjóðanna að kaupa Glitnir í Noregi.
Norska stofnunin Eksportfinans gerði einnig lögtak í hlutabréfum Glitnis í Noregi vegna lána, sem stofnunin veitt þremur útgerðarfyrirtækjum. Glitnir var milliliður. Fyrirtækin greiddu síðan lánin upp til Glitnis, sem ekki stóð skil á höfuðstólnum til Eksportfinans.



















