Yfirlýsing um aðildarumsókn myndi hafa víðtæk áhrif

Höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Brussel.
Höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Brussel. AP

Greining Glitnis segir í dag, að áhrif af aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru sem gjaldmiðils yrðu víðtæk hér á landi. Ekki þyrfti að bíða eftir aðildinni sjálfri eftir þeim viðbrögðum og á grundvelli væntinga myndu markaðir bregðast skjótt við.

„Þannig var það t.d. talið hafa haft umtalsverð áhrif til lausnar bankakreppunnar í Skandinavíu í upphafi tíunda áratugarins þegar Svíar og Finnar lýstu yfir vilja til að ganga inn í ESB þó svo að af inngöngunni yrði ekki fyrr en nokkru síðar. Yfirlýsing íslenskra stjórnvalda um að stefnt væri að ESB aðild og upptöku evrunnar myndi þannig hafa áhrif strax. Er það umhugsunarefni öllum þeim sem greina stefnu hins íslenska fjármálamarkaðar en aðild myndi breyta vaxtaumhverfinu hér á landi til muna, stöðu myntarinnar að sjálfsögðu og öðrum grundvelli fjármálamarkaðarins," segir m.a. í Morgunkorni Glitnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK