Viðskipti
| mbl
| 30.10.2008
| 14:58
Darling gefur til kynna lækkun vaxta
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, gaf í dag til kynna að stýrivaxtalækkun væri væntanleg hjá Englandsbanka.
Ráðherrann tilkynnti í dag um fjögurra milljarða punda lausafjárinnspýtingu í breska banka. Fjármunirnir eru ætlaðir til lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Á fréttavef The Times kemur fram að Darling hafi við það tækifæri sagt að hann segði Englandsbanka ekki fyrir verkum en gefið sterklega til kynna að ætlast væri til lækkunar vaxta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















