Viðskipti
| mbl
| 30.10.2008
| 15:10
Heimilt að selja allar eigur Exista
Samþykkt var á hluthafafundi Exista í dag, að veita stjórn félagsins ótakmarkaða heimild til þess að selja eða ráðstafa allt að öllum eignum félagsins að því gefnu að slíkar ráðstafanir séu að vandlegu mati hagstæðar og hagfelldastar félaginu.
Er í samþykktinni vísað til verulegra efnahagslegra erfiðleika í þjóðfélaginu.
Einnit var samþykkt að félagið verði tafarlaust afskráð úr kauphöll Íslands. Fékk stjórn félagsins heimild til þess að
annast slíka afskráningu.
Þá var samþykkt að heimila stjórn félagsins að auka hlutafé þess um allt að 50 milljarða króna að nafnverði og taka lán fyrir rúmlega 7 milljarða króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















