Hlutabréf hækka en olía lækkar

Hlutabréf hækkuðu í verði í kauphöllinni á Wall Street í kvöld en fjárfestar vonast til að vaxtalækkun bandaríska seðlabankans í gær muni örva þarlent atvinnulíf.  

Olíuverð lækkaði hins vegar á ný eftir nokkra hækkun í gær. Í New York lækkaði verð á tunnu af hráolíu um 1,54 dali og er 65,96 dalir. Brent Norðursjávarolía lækkaði um 1,76 dali á markaði í Lundúnum og er 63,71 dalur.

Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 2,14% í dag og er  nú 9182 stig. Nasdaq vísitalan hækkaði um 2,51% og er 1698 stig. Gengi hlutabréfa deCODE hækkaði um 12% og er 28 sent.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK