Virðist vinsælt að færa eignarhluti í skúffufélög

Morgunblaðið Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is

Hinn 14. október stofnaði Logos lögmannsstofa fimm ný einkahlutafélög. Eitt þessara félaga, ELL 182 ehf., er félag sem var síðan selt Bakkabræðrum, þeim Ágústi og Lýði Guðmundssyni, umbjóðendum stofunnar.

ELL 182 ehf. keypti síðan 45% hlut Exista í Bakkavör, 855.151.478 hluti á genginu 9,79 kr. á hlut, sem var dagslokagengi í Bakkavör Group hinn 8. október sl. Kaupverðið var því tæpir 8,4 milljarðar. Ekki liggur fyrir hvernig ELL 182 ehf. fjármagnaði kaupin, en hlutafé félagsins var 500.000 kr. við stofnun. Samkvæmt upplýsingum frá Logos lögmannsstofu á stofan mörg félög, svipuð ELL 182 ehf., sem eru síðan seld umbjóðendum stofunnar. Þessi félög eru það sem í daglegu tali er kallað „skúffufélög“.

Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, átti stóran hlut í bankanum sem hann síðan færði í einkahlutafélag í sinni eigu. Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi var starfsmönnum óheimilt að hafa hluti, sem þeir áttu í fyrirtækinu sem þeir unnu hjá, í einkahlutafélagi, heldur urðu þeir að vera sjálfir skráðir fyrir hlutnum.

Var þetta fyrirkomulag samkvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins og var þar vísað til gagnsæissjónarmiða. Þessu var síðan breytt og þeim starfsmönnum sem vildu færa bréf sín inn í einkahlutafélag var gert kleift að gera slíkt með samþykki regluvarðar og innri endurskoðanda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Tvær nýjar vélar í flota Icelandair

Í gær, 18:42 Forstjóri Icelandair Group segist sáttur við fjárhagslega niðurstöðu síðasta árs en 4,5 milljarða króna hagnaður varð af rekstrinum. Í ár bætast tvær nýjar flugvélar í flota fyrirtækisins. „Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi í ár,“ segir forstjórinn. Meira »
Frá Borgarnesi.

Selja hlutinn á 75 milljónir

Í gær, 18:27 Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti í dag að taka tilboði Reykjavíkurborgar í hluta af eignarhlut í Faxaflóahöfnum. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á 75 milljónir króna. Meira »

Misnotaði markaðsráðandi stöðu

Í gær, 17:03 Með dómi Hæstaréttar í dag er staðfest sú niðurstaða að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Í mál við Ryanair vegna eldgoss á Íslandi

Farþegar Ryanair sofa á flugvelli í Skotlandi í kjölfar öskuskýsins frá Íslandi í maí 2010.
Í gær, 14:51 Ryanair segist ekki bera ábyrgð á kostnaði flugfarþega sem til féll er flugumferðarsvæðinu var lokað árið 2010 vegna eldgosa á Íslandi. Málið er flutt fyrir Evrópudómstólnum í dag. Meira »

Óbreyttir vextir á evrusvæðinu

Seðlabanki Evrópu í Frankfurt
Í gær, 12:49 Peningastefnunefnd Seðlabanka Evrópu ákvað á fundi sínum í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 1%.   Meira »

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Englandsbanki
Í gær, 12:34 Stýrivextir Englandsbanka verða áfram 0,50% en peningastefnunefnd bankans kynnti stýrivaxtaákvörðun sína í hádeginu.  Meira »

Sekt fyrir netsmelli

Í gær, 16:33 Hæstiréttur hefur dæmt Icelandair til að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína með því að bjóða svonefnda Netsmelli árið 2004 milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Hagnaðurinn tvöfaldaðist

Hollenski bankinn ING
Í gær, 13:11 Hagnaður hollenska bankans ING tvöfaldaðist á milli ára og nam árið 2011 5,77 milljörðum evra, 938 milljörðum króna.  Meira »

Pepsi ætlar að segja 8.700 upp

Pepsi hefur boðað uppsagnir hjá fyrirtækinu
Í gær, 12:44 Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi ætlar að fækka starfsmönnum um 8.700 en það svarar til 3% starfsmanna.   Meira »

Hagnaður Össurar 4,5 milljarðar

Jón Sigurðsson forstjóri Össuarar
Í gær, 11:49 Hagnaður Össurar nam 36,63 milljónum Bandaríkjadala, 4,5 milljörðum króna, á síðasta ári samanborið við 35,4 milljónir dala árið 2010. Meira »

Danske Bank boðar uppsagnir

Danske Bank.
Í gær, 10:24 Danski bankinn Danske Bank ætlar að fækka störfum um tvö þúsund á næstu þremur árum en alls starfa 21.320 manns hjá bankanum. Meira »

Útlit fyrir minni eftirspurn

Í gær, 12:33 OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, telja að eftirspurn eftir hráolíu eigi eftir að vera minni í ár en áður var talið.   Meira »

Allir græða á flugframboði Easy Jet

Þotur EasyJet hefja komur sínar til Íslands í lok mars. .
Í gær, 10:30 Í gær tilkynnti Easy Jet að það myndi á næsta ári byrja að fljúga frá Íslandi til London allan ársins hring.   Meira »

59% samdráttur hjá Rio Tinto

Rio Tinto Alcan hefur þurft að afskrifa háar fjárhæðir vegna yfirtökunnar á Alcan
Í gær, 09:52 Hagnaður ál- og námafyrirtækisins Rio Tinto, sem á og rekur álverið í Straumsvík, dróst saman um 59% á síðasta ári og nam 5,8 milljörðum Bandaríkjadala, 710 milljörðum króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir