Tap Haga 1,4 milljarðar króna
Tap Haga nam á tímabilinu 1. mars til 31. ágúst 2008 1.409 milljónum kr. en hagnaður fyrir sama tímabil árið áður nam 715 millj. kr. Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 6.687 millj. kr. en nam 8.808 millj. kr í febrúarlok 2008. Eiginfjárhlutfall félagsins var 23,4%.
Rekstrartekjur tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2008 námu 29.351 millj. kr. en námu 25.474 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður.
Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 28.579 millj. kr. en námu 27.995 millj. kr. í febrúarlok 2008.
Fyrirtæki í eigu Haga eru: Bónus, Debenhams, Hagkaup, Ferskar kjötvörur, 10-11, Noron (Zara), Aðföng, Íshöfn, Hýsing Bananar og Útilíf. Hlutdeildarfélög eru: Max og SMS p/f.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að mikil óvissa ríkir um vöruöflun verslunarfyrirtækja á Íslandi í dag, þ.m.t. aðföng til verslana Haga.
„Gjaldeyrir er af skornum skammti, auk þess sem almenn milliríkjaviðskipti og greiðsluflæði á milli landa er í ólestri. Viðskiptasambönd Haga hafa beðið hnekki sökum efnahagsástands hér á landi undanfarnar vikur. Félagið vinnur nú að samningum um vörukaup, m.a. í gegnum verslunarfyrirtæki Baugs erlendis.
Félagið mun leggja höfuðáherslu að tryggja viðskiptavinum sínum matvörur
og aðrar nauðsynjavörur og koma þar með í veg fyrir vöruskort. Óstöðugleiki
íslensku krónunnar og mikil verðbólga hefur mikil neikvæð áhrif á rekstur Haga,"að því er segir í tilkynningu.



















