Viðskipti
| mbl
| 3.11.2008
| 15:54
34% samdráttur í nýskráningum ökutækja
mbl.is
Nýskráningar ökutækja á fyrstu tíu mánuðum ársins voru samtals 17.173 en á sama tímabili í fyrra voru 26.020 ökutæki nýskráð hér á landi. Þetta er 34% fækkun nýskráninga milli ára. Á tveimur vikum þ.e. frá 17. október til 31. október voru í ár skráð aðeins 110 ökutæki en á sama tímabili í fyrra voru þau 1.088.
Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 72.688 en þau voru 89.788 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 19% milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.
|
|
Innflutningur ökutækja til landsins |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















